
Við sjáum margskonar sjávarfugla í ferðunum okkar og má þar helst nefna súlu, lunda, langvíu, álku, skarf, máva, ritur, kríur og marga fleiri. Sjórinn í kringum Ísland er mikil matarkista á sumrin fyrir fugla sem og önnur dýr. Í Faxaflóa er þetta einstakt og koma því þangað mörg þúsund fuglar á hverju sumri til að éta og til að koma upp ungum sínum. Sumar tegundirnar hafa ferðast langar leiðir til að komast hingað, t.d. krían sem ferðast á hverju ári milli Íslands í norðri og suðurskautslandisins í suðri. Í ferðunum okkar er staldrað við í Lundey eða Akurey sem eru byggðar af þúsundum lunda og annarra sjófugla og sagt er frá helstu tegundum og einkennum þeirra meðan stoppað er við eyjurnar. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla fuglaskoðara og aðra náttúruunnendur til að komast nálægt hinum viltu sjófuglum í kringum Ísland.