Öryggi um borð
Við berum sérstaka umhyggju fyrir öryggi farþega okkar og þess vegna höfum við sérstaka öryggisáætlun þar sem fylgst er með að allir öryggisþættir séu í lagi og eru allir starfsmenn okkar þjálfaðir eftir því. Allir áhafnameðlimir sækja námskeið í hóp- og neyðarstjórnun sitja einnig vikunámskeið hjá slysavarnarskóla sjómanna.
Leiðsögumenn fara yfir öll öryggisatriði um borð þegar lagt er af stað í ferð.
Farðþegum boðið velkomið um borð og áhöfn kynnt
Farþegar upplýstir um kunnáttu áhafnar til að bregðast við í neyð, en áhöfn hefur lokið neyðar- og hópstjórnunarnámskeiðum Sjóbjörgunarsskólans. Talað um mikilvægi þess að farðþegar reyni ekki að taka aðstæður í eigin hendur ef um neyð sé að ræða þar sem þess konar athafnir geti hindrað viðbragðsáætlun áhafnar.
Þar næst er farið yfir staðsetningu öryggisbúnaðar á skipi:
Björgunarvesti (staðsetning)
Tilkynnt að öll börn 12 ára og yngri verði að klæðast björgunarvestum, áhöfn sér um að útvega réttar stærðir vesta
Björgunarbátar (staðsetning og fjöldi)
Björgunarhringir (staðsetning og fjöldi)
Farþegum boðið upp á flotgalla sem öryggisbúnað og bent á að gallarnir séu hlýjir og vatnsheldir
Farþegum boðið upp á regnjakka
Farþegum bent á að fara varlega þegar gengið er um bátinn þar sem misgott er í sjóinn og mikilvægt að fólk hafi innan handar rekkverk eða niðurneglda bekki til að grípa í ef veltingur er.
Farþegar eru beðnir um að fara sérstaklega varlega þegar gengið er upp og niður stigana, þá er bent á að öruggast sé að ganga aftur á bak niður stigana þar sem betra jafnvægi fæst og betra tak um handriðin. Ef nokkur alda er og/eða rigning er fólk minnt á þennan þátt reglulega í ferðinni
Að lokum er farþegum bent á barinn, staðsetningu salerna og ruslatunnur. Um borð eru ruslatunnur fyrir almennt rusl og fyrir dósir, farþegar eru þannig hvattir til að hjálpa okkur við að endurvinna
Hér eru nokkrar myndir frá björgunaræfingum og öryggisnámskeiðum Slysavarnaskóla Sjómanna