Sjóstangaferðir eru áætlaðar frá
1. maí til lok ágúst. Siglt er daglega kl 11:00 frá Ægisgarði (Gömlu höfninni).
Yfirleitt er báturinn Elding II notaður og er allur búnaður til veiðanna innifalinn, ásamt regnstökkum. Skipstjórarnir okkar þekkja veiðisvæðið á sunnanverðum Faxaflóa vel og þykja ótrúlega fisknir.
Hægt er að bóka fyrir hópa og sérsníða ferðina að hópnum. Sendu okkur fyrirspurn á mailto:elding@elding.is eða hringdu í síma 555-3565.
Hér eru þeir bátar sem notaðir eru sjóstangaferðir:
ELDING II fyrir daglegar áætlunarferðir og sérferðir fyrir minni hópa
Skrúður fyrir meðalstóra hópa í sérferðir
ELDING fyrir stærri hópa í sérferðir (smelltu á myndina til að stækka hana).