Sjálfbærni

Elding - að viðhalda vistfræðilegu jafnvægi

Til þess að nýta náttúruauðlindirnar sem hvalirnir eru og ferðirnar okkar eru byggðar á, þurfum við að virða náttúruna og gefa eins mikið til baka og við mögulega getum. Eldingarteymið leitast því við að viðhalda nauðsynlegu vistfræðilegu jafnvægi og hjálpa til við að vernda náttúruna og líffræðilega fjölbreytni.

Markmið okkar er að starfa eftir sjálfbærnnisstefnu sem vísa til viðeigandi jafnvægis-, umhverfis-, efnahags- og menningarlegra þátta í þróun ferðaþjónustu. Við gerum okkar besta að að bjóða ávallt upp á góða þjónustu og byggjum vinnu okkar á stöðlum EarthCheck og Bláfánanum ásamt því að fylgja leiðbeiningum IceWhale.

Vinna að sjálfbærni

Ætlast er til að allir starfsmenn Eldingar leggi sitt af mörkum þegar kemur að sjálfbærni og starfi samkvæmt umhverfisstefnu okkar. Við vinnnum náið saman að framkvæmd umhverfisstefnu okkar og gerum hana eins skilvirka og mögulegt er. Við biðjum einnig alla farþega okkar að taka þátt í umhverfisstarfinu um borð, með því t.d. að flokka sorp, þar sem við teljum framlag þeirra mjög mikilvægt.

Ábyrg hvalaskoðun - þinn stuðningur er vel þeginn

Skoðaðu hvali og höfrunga með fyrirtæki sem er ábyrgt og annt um lífríki sjávar. Elding hefur verið vottað sem ábyrgt hvalaskoðunarfyrirtæki af World Cetacean Alliance, sem er öflugt bandalag einstaklinga, fyrirtækja og samtaka sem vinna að bestu starfsháttum og sjálfbærni í ferðaþjónustu sem snýr að hvala- og höfrungaskoðun. Saman erum við alþjóðleg rödd þessara dýra.

Sjálfbærni tímalínan okkar

2020 Elding viðheldur viðurkenningu Bláfánans
2020 Elding nær viðmiðum World Cetacean Alliance fyrir ábyrga hvalaskoðun
2019 Elding viðheldur platínum viðurkenningu EarthCheck
2019 Elding fær viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki ábyrgrar ferðaþjónustu fyrir árið 2018
2019 Elding viðheldur viðurkenningu Bláfánans
2019 Elding viðheldur gull viðurkenningu VAKANS
2019 Elding tilnefnt til verðlauna Norðurlandaráðs
2018 Elding fær platínum viðurkenningu EarthCheck
2018 Elding tilnefnt til verðlauna Norðurlandaráðs
2018 Elding fær umhverfisverðlaun Kuðungsins fyrir árið 2017
2018 Elding er einn af stofnmeðlimum Votlendissjóðsins
2018 Elding viðheldur viðurkenningu Bláfánans
2017 Elding viðheldur gull viðurkenningu EarthCheck
2017 Elding viðheldur viðurkenningu Bláfánans
2017 Elding viðheldur gull viðurkenningu VAKANS
2016 Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck
2016 Elding fær viðurkenningu Bláfánans, undir nýjum viðmiðum
2015 Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck
2014 Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck
2013 Elding fær Fjörusteininn, viðurkenningu Faxaflóahafna
2013 Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck
2012 Elding fær silfur viðurkenningu EarthCheck
2012 Elding fær gull viðurkenningu VAKANS frá Ferðamálastofu
2011 Elding byrjar þáttöku í World Cetacean Alliance (þá undir nafninu PlanetWhale)
2010 Elding fær silfur viðurkenningu EarthCheck
2008 Elding fær silfur viðurkenningu EarthCheck (þá undir nafninu GreenGlobe) 
2008 Elding fær umhverfisviðurkenningu Ferðamálastofu
2007 Elding tekur þátt í Smart H2 verkefninu
2006 Elding fær viðurkenningu Bláfánans
2006 Elding byrjar þátttöku í EarthCheck (þá undir nafninu GreenGlobe) 
2003 Elding er einn af stofnmeðlimum IceWhale