-
Season júní – ágúst
-
Duration 20 mínútur
-
Location Reykjavík
-
Language Enska
-
Pickup Not available
-
Price From ISK 2.500
Tour description
Viðeyjarferjan frá Ægisgarði er í um 5-10 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum.
1. júní - 31. ágúst
Brottför í Viðey: Daglega kl. 11:50 og 14:50
Brottför úr Viðey: Daglega kl. 11:30, 14:30 og 17:30
Viðey er einstakur staður sem sameinar sögu, list og náttúru. Það tekur aðeins örfáar mínútur að sigla yfir í friðsældina og óspillta náttúrunna sem Viðey er vel þekkt fyrir.Mikið fuglalíf er í eyjunni, sem og glæsileg nútíma listaverk sem að setja svip sinn á eyjunna.
Heimsþekktir listamenn hafa valið Viðey sem ákjósanlegann stað fyrir staðsetningu listaverka sinna. Verk Richard Serra og Yoko Ono eru bæði ómetanleg djásn og auka við þá ánægju sem gestir hafa af heimsókn til Viðeyjar.
Eyjan er um 1,6 km2 að stærð og skiptist hún í tvo hluta, Heimaey og Vesturey, sem tengjast með Eiðinu. Hún rís hæst 32 m yfir sjávarmáli og meðfram strönd eyjunnar sjást stórbrotnar bergmyndanir. Skal sérstaklega bent á fegurð stuðlabergsins í Virkishöfðanum og Eiðisbjargin. Þar eru einnig 156 tegundir háplantna, sem er um þriðjungur af flóru landsins.
Við Þórsnesið er eyjan friðuð yfir varptímann, eða frá 1. maí - 1. júlí. Æðarfuglinn er algengastur þar, en aðrar algengar fuglategundir í eyjunni eru fýll, grágæs, hrossagaukur, sendlingur, og tjaldur. Alls verpa þar um 30 fuglategundir.
Viðey er perla sem okkur ber öllum að gæta og varðveita. Við biðjum gesti að sýna sérstaka aðgát við háa sjávarhamra, fara eftir gönguleiðum og hrófla alls ekki við hreiðrum. Berum virðingu fyrir dýralífi og náttúru í eyjunni, göngum vel um og tínum upp rusl.
Sjá kort af Viðey hér.
Sjá viðburðardagskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur í ferðalýsingu.
Itinerary
Dagskrá Borgarsögusafns í Viðey 2026
JÚNÍfös. 19. júní kl. 16:15 – Táknmálsleiðsögn í Viðeysun. 21. júní kl. 20 – Sumarsólstöðuganga m. sérstökum heiðursgestiJÚLÍlau. 4. júlí kl. 13 – Klaustur og plöntur með Björk Bjarnadóttur umhverfisþjóðfræðingisun. 19. júlí kl. 13 – Viðeyjarmót í skákÁGÚSTlau. 15. ágúst kl. 13 – Kúmenganga og leiðsögn með Björk Bjarnadótturumhverfisþjóðfræðingifim. 20. ágúst kl. 20 – Klaustur í 800 ár – Kvöldganga með Margréti Hallgríms
Included
- Báðar ferðir - fram og til baka
- Ferja frá Ægisgarði í Viðey
What to bring?
- Góðir skór
- Klæðnaður eftir veðri
Please note
Barnamiðar (0-6 ára) eru einungis endurgjaldslausir í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Aðeins er hægt er að bóka þrjá barnamiða (0-6 ára) fyrir hvern fullorðinn, í hverri bókun.
Leikskólahópar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við sales@elding.is til þess að bóka í ferjuna.




