Elding - að viðhalda vistfræðilegu jafnvægi
Til þess að nýta náttúruauðlindirnar sem hvalirnir eru og ferðirnar okkar eru byggðar á, þurfum við að virða náttúruna og gefa eins mikið til baka og við mögulega getum. Eldingarteymið leitast því við að viðhalda nauðsynlegu vistfræðilegu jafnvægi og hjálpa til við að vernda náttúruna og líffræðilega fjölbreytni.
Markmið okkar er að starfa eftir sjálfbærnnisstefnu sem vísa til viðeigandi jafnvægis-, umhverfis-, efnahags- og menningarlegra þátta í þróun ferðaþjónustu. Við gerum okkar besta að að bjóða ávallt upp á góða þjónustu og byggjum vinnu okkar á stöðlum EarthCheck og Bláfánanum ásamt því að fylgja leiðbeiningum IceWhale.
Vinna að sjálfbærni
Ætlast er til að allir starfsmenn Eldingar leggi sitt af mörkum þegar kemur að sjálfbærni og starfi samkvæmt umhverfisstefnu okkar. Við vinnnum náið saman að framkvæmd umhverfisstefnu okkar og gerum hana eins skilvirka og mögulegt er. Við biðjum einnig alla farþega okkar að taka þátt í umhverfisstarfinu um borð, með því t.d. að flokka sorp, þar sem við teljum framlag þeirra mjög mikilvægt.
Ábyrg hvalaskoðun - þinn stuðningur er vel þeginn
Skoðaðu hvali og höfrunga með fyrirtæki sem er ábyrgt og annt um lífríki sjávar. Elding hefur verið vottað sem ábyrgt hvalaskoðunarfyrirtæki af World Cetacean Alliance, sem er öflugt bandalag einstaklinga, fyrirtækja og samtaka sem vinna að bestu starfsháttum og sjálfbærni í ferðaþjónustu sem snýr að hvala- og höfrungaskoðun. Saman erum við alþjóðleg rödd þessara dýra.
| 2020 | Elding viðheldur Bláfánanum |
| 2020 | Elding er vottað sem ábyrgt hvalaskoðunarfyrtæki af World Cetacean Alliance |
| 2019 | Elding fær platínum viðurkenningu EarthCheck |
| 2019 | Elding er verðlaunað sem fyrirmyndarfyrirtæki í ferðarþjónstu fyrir árið 2018 |
| 2019 | Elding viðheldur Bláfánanum |
| 2019 | Elding viðheldur gull viðurkenningu Vakans |
| 2018 | Elding fær platínum viðurkenningu EarthCheck |
| 2018 | Elding er tilnefnt til umhverfisverðlauna norðurlandarráðs fyrir árið 2018 |
| 2018 | Elding tekeur á móti umhverfisverðlaunum Kuðungsins fyrir vel unnin störf árið 2017 |
| 2018 | Elding er einn af stofnaðilum Votlendissjóðsins |
| 2018 | Elding viðheldur Bláfánanum |
| 2017 | Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck |
| 2017 | Elding viðheldur Bláfánaviðurkenninngu í annað sinn undir nýjum viðmiðum |
| 2017 | Elding viðheldur gull viðurkenningu Vakans |
| 2016 | Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck |
| 2016 | Elding tekur á móti Bláfánanum, undir nýjum viðmiðum |
| 2015 | Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck |
| 2014 | Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck |
| 2013 | Elding tekur á móti Fjörusteininum, umhverfisviðurkenningu Faxaflóahafna |
| 2013 | Elding fær gull viðurkenningu EarthCheck |
| 2012 | Elding fær silfur viðurkenningu EarthCheck |
| 2012 | Elding fær gull viðurkenningu Vakans frá Ferðamálastofu |
| 2011 | Elding byrjar í samstarfi við World Cetacean Alliance og verkefni um ábyrga hvalaskoðun (á þeim tíma undir nafninu PlanetWhale) |
| 2010 | Elding fær silfur viðurkenningu EarthCheck |
| 2008 | Elding fær silfur viðurkenningu EarthCheck (á þeim tíma undir nafninu GreenGlobe) |
| 2008 | Elding er veitt umhverfisverðlaun Ferðamálastofu |
| 2007 | Elding tekur þátt í Smart H2 verkefninu |
| 2006 | Elding tekur á móti viðurkenningu Bláfánans |
| 2006 | Elding fær viðurkenningu EarthCheck (á þeim tíma undir nafninu GreenGlobe) |
| 2003 | Elding er einn af stofnaðilum IceWhale |




