Bátarnir Okkar

Fjölbreytt Úrval Báta

Við eigum fjölbreytt úrval báta sem eru notaðir í hinar ýmsu ferðir. Einnig erum með einstakt hvalasetur sem er einskonar samkomustaður fyrir farþega okkar, en þar er einnig að finna lítið náttúrulífssafn, kaffiteríu og minjagripaverslun.

Reykjavík:
Við erum með mismunandi báta staðsetta í hjarta Reykjavíkur. Hafsúlan, Elding og Eldey eru notaðir í klassísku hvalaskoðunar- og norðurljósaferðirnar okkar, Elding II er aðallega notuð í sérferðir, Skrúður er notaður fyrir sjóstöng og lundaskoðun og Gestur sem Viðeyjarferjan. Við erum einnig með nokkra RIB báta sem nefnast Þruma I-V sem eru notaðir fyrir áætlunarferðir í premium hvala- og lundaskoðun, en einnig sérferðir. Gestamóttakan okkar er staðsett í bátnum Fífil en á neðri hæð bátsins er hvalaskoðunarsafn og efri hæð kaffitería og minjagripaverslun. Aðgangur er ókeypis fyrir gesti Eldingar.

Akureyri:
Það eru nokkrir bátar í notkun í hinum ýmsu ferðum á Akureyri. Hólmasól, Ambassador og Konsúll eru notaðir í klassíska hvalaskoðun og norðurljósaferðir. Við erum einnig með RIB bátana Sólfar I & II  og Diplomat I & II sem eru aðallega notaðir í express hvalaskoðun en einnig sérferðir og hvataferðir.

Þægindi í Fyrirrúmi

Allir bátarnir okkar hafa inni og úti svæði (nema RIB bátarnir) og eru þeir eru búnir salernisaðstöðu, kaffiteríu og öryggisbúnaði. Þú getur þannig slappað af í upphituðum borðsal eða notið útsýnisins utandyra á útsýnispöllum bátanna á meðan á ferð stendur. Til að gera ferðina ennþá ánægjulegri fyrir þig eru um borð hlýjir flotgallar, regngallar og teppi.

Við Setjum Öryggið í Fyrsta Sæti

Öryggi er okkar aðaláhersla og við gætum þess að allar mögulegar varúðarráðstafanir séu yfirfarnar til að tryggja örugga og ánægjulega ferð. Áhöfnin okkar hefur farið í STCW námskeið hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og uppfæra reglulega skírteini sín í öryggi á sjó og mannsbjörg.

Bátarnir okkar fara í gegnum strangt skoðunarferli til þess að uppfylla reglur og reglugerðir samgöngustofu. Öryggisvesti eru auðvitað aðgengileg fyrir alla farþega en skylt er fyrir börn undir 12 ára aldri að vera í öryggisvestum á meðan ferð stendur.