Rannsóknir - til þess að skilja vistkerfi sjávarins betur
Við tökum þátt í rannsóknum á sjávarspendýrum og bjóðum sjávarlíffræðingum og vísindamönnum velkomin um borð. Við notum aðallega ljósmyndir til að auðkenna hvali með því að bera saman ugga, ör og/eða sporð dýranna til þess að:
- þekkja einstaklinga í sundur
- sjá hvert dýrin ferðast
- athuga hvaða aðra einstaklinga dýrin eru líkleg til að umkringjast
- kanna hvort þau heimsækja sömu svæðin aftur
- meta aldur og fjölda dýra í stofni
Á einni mynd er að finna fjöldan allan af upplýsingum.
Þetta er það sem við gerum
Við tökum myndir af örum, klórum eða öðru sem augljóslega aðgreinir dýrin frá hvort öðru; svo sem mynstur undir sporðunum, mislitun á líkama, tannaför osfrv. Ef þú átt myndir af hvölum / höfrungum og vilt hjálpa rannsóknarteyminu okkar, vinsamlegast sendu myndirnar þínar til okkar. Myndirnanr þurfa að vera í góðum gæðum, skarpar og helst í nærmynd.
Til þess að fá frekari upplýsingar um rannsóknarstörf okkar, vinsamlegast skoðið: www.eldingresearch.com
Hér eru nokkrir hvalir sem við sjáum oft!
| NAFN | TÍMABIL | SÍÐAN ÁRIÐ |
|---|---|---|
| Donut | Apríl-Ágúst | 2007 |
| Peanut | Apríl-Ágúst | 2007 |
| Midi | Febrúar-September | 2008 |
| Resight Guy | Maí-September | 2008 |
| Humpie | Maí-September | 2011 |
| Gills | Ágúst-September | 2012 |
| Oreo | Apríl-Ágúst | 2012 |
| Tattoo | Júní-September | 2016 |
| Þröstur | Júí-Ágúst | 2015 |




