Meiri verðmæti í hvalaskoðun
Elding er fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 2000, og brautryðjandi í hvalaskoðun frá Reykjavík. Allt frá upphafi höfum við leitað leiða til að draga úr umhverfisáhrifum og mengun af starfsemi okkar.
Afrek á sviði umhverfismála
Við erum aðilar að EarthCheck og Vakanum (umhverfisstjórnunarkerfi), skipin okkar bera Bláfánann og við tókum við umhverfisverðlaunum Ferðamálaráðs árið 2008. Elding leggur áherslu á að bjóða upp á hágæða ferðir og draga um leið úr umhverfisáhrifum og mengun af starfsemi okkar. Hvalaskoðun getur haft áhrif á dýrin sem við heimsækjum. Áhöfnin okkar fylgir siðareglum IceWhale um ábyrga hvalaskoðun til að halda þeim áhrifum í lágmarki: við hægjum á okkur nálægt dýrunum, höldum fjarlægð, takmörkum tímann hjá þeim og drögum okkur í hlé ef þau sýna merki um truflun.
Sjálfbærnistefna
Sérstök áhersla er lögð á að leitast við að finna minna mengandi orkugjafa til að reka starfsemi okkar, lágmarka framleiðslu úrgangs og bæta endurvinnslu. Í sjálfbærnisstefnu okkar er sérstök áhersla lögð á:
- Að eiga aðeins í viðskiptum við fyrirtæki merkt með norræna umhverfismerkinu varðandi prentun bæklinga og miða.
- Að fylgja viðeigandi umhverfis- og vinnuverndarlögum og reglugerðum um heilsu og öryggi, löggjöf er varðar hreinlæti og atvinnumál, sem og viðmiðunarreglur IceWhale um ábyrga hvalaskoðun.
- Að hugað sé að því að ráða heimamenn og styðja einnig við alþjóðlegt samstarf við vísindamenn og veita erlendum nemendum atvinnutækifæri.
- Að gefa umhverfisvænum vörum og þjónustu úr heimabyggð forgang, svo lengi sem það hefur ekki slæm áhrif á rekstrarstarfsemi, hagkvæmni, umhverfisleg- og félagsleg áhrif.
- Að veita starfsfólki reglulega umhverfis- og öryggisþjálfun og hvetja þá til að kynna stefnu okkar fyrir gestum, birgjum og viðskiptavinum. Við leitumst við að fræða gesti okkar um hafið og viðmiðunarreglur er varðar ábyrga hvalaskoðun.
Sjálfbært jafnvægi
Við teljum að nýting umhverfisauðlinda sé lykilatriði í þróun ferðaþjónustu til að viðhalda nauðsynlegum vistfræðilegum ferlum og stuðla að verndun náttúruarfleifðar og líffræðilegs fjölbreytileika. Markmið Eldingar er að starfa eftir sjálfbærnisreglum sem vísa til umhverfis-, efnahags- og félags- og menningarlegra þátta í þróun ferðaþjónustu. Koma verður upp viðeigandi jafnvægi milli þessara þriggja þátta til þess að tryggja sjálfbærni þess til lengri tíma.
Í framhaldinu
Við munum stöðugt leitast við að bæta árangur í umhverfismálum og félags- og menningarheimum og stefnan verður endurskoðuð árlega í samræmi við kröfur fyrirtækjastaðalsins.
Rannveig Grétarsdóttir
Framkvæmdastjóri




