Lundaskoðun frá Reykjavík

Tripadvisor 382 reviews
Lundaskoðun er skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna! Gríptu tækifærið og skoðaðu þessa fallegu fugla milli maí - ágúst, þar sem þeir eru í aðeins nokkurrra mínútna fjarlægð frá borginni.
  • Season apríl – ágúst
  • Duration 1 klukkustund
  • Staðsetning Reykjavík
  • Tungumál Enska
  • Pickup Available
  • Price From ISK 8.300

Tour description

Klassíska lundaferðin okkar er persónuleg, fróðleg og algjört ævintýri á sjó! Gríptu tækifærið og sjáðu litríku lunda Íslands í þeirra náttúrulegu umhverfi.

Tímabil: 1 maí - 15 ágúst
Tímalengd: 1-1,5 klst.

Komdu við í miðasölu okkar við gömlu höfnina í Reykjavík þar sem þú sækir brottfararspjald og verður vísað áfram um borð. Áhöfnin tekur á móti þér við flotbryggjuna og býður þér velkomin í bátinn sem staðsettur er fyrir framan hvalasetrið okkar. Það fer eftir veðri og vindum hvort stoppað sé við Engey, Akurey eða Lundey, en eyjarnar eru stutt frá Reykjavík og eru þær þekktar fyrir mikið fuglalíf, en þar má finna tugi þúsunda para af lundum á sumrin.

Til þess að trufla ekki fuglalífið förum við ekki frá borði, heldur siglir skipstjórinn eins nálægt og mögulegt er, án þess þó að nærvera okkar hafi neikvæð áhrif á fuglana. Aðrar fuglategundir sem við sjáum reglulega eru t.d. æður, kríur, teistur og dílaskarfar.

Í ferðinni munu leiðsögumenn segja frá áhugaverðum staðreyndum um lundana og nærumhverfi þeirra. Undir góðum kringumstæðum er möguleiki á að skipstjórinn slökkvi jafnvel á vélum bátsins svo við fáum að njóta náttúrunnar og fuglasöngvanna til hins ýtrasta!

Þar sem að fuglarnir eru smáir þá mælum við með að taka góða aðdráttarlinsu fyrir myndavélina fyrir myndatökur eða sjónauka (eru einnig í boði á bátnum). Sjónaukar eru til láns um borð fyrir þá sem vilja.

Einnig er hægt að bóka ferð í hvalaskoðun eða premium lunda ferðina okkar sem tekur þig ennþá nær og hraðar að fuglunum. 

Itinerary

  1. Check-in

    Meet us at our ticket office at least 15 min. before departure to check-in and receive your boarding card(s). Our team will show you to our boat, that is usually docked at the floating pier in front of our Visitor Centre / Wildlife Exhibition.

  2. Boarding

    Our team will greet you on board the puffin boat and welcome you on board. Make sure to have your boarding card(s) readily available to ensure a smooth boarding process. Once on the boat, you are free to walk around, chat with the crew or find the perfect lookout spot!

  3. Engey - Akurey - Lundey

    Við siglum út frá gömlu höfninni í Reykjavík og stoppum ýmist við Engey, Akureyri eða Lundey sem eru aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð frá borginni. Þar er að finna mikið og fjölbreytt fuglalíf og eru best þekktar sem varpstaður tug-þúsunda lundapara hvert sumar!

    Eyjarnar eru friðlýstar svo við getum ekki stigið frá borði, en skipstjórinn mun sigla eins nálægt eyjunum og mögulegt er, án þess þó að trufla fuglalífið.

    Athugið að lundar eru smágerðir og því er ráðlegt að taka með sér góða aðdráttarlinsu eða sjónauka. Möguleiki er að fá lánaða sjónauka um borð ef þörf er á.

  4. Disembarking

    The total duration of the tour is about 1-1,5 hrs. from boarding to disembarking, while the duration spent with the wildlife can vary. We hope you have a pleasant time on the tour and leave with a smile on your faces, as well as ever lasting memories. Feel free to email us at elding@elding.is for feedback or photos, which our team will happily provide if they were able to take any on the tour! 

    Now that you're back on land, we recommend taking a stroll through the Old Harbour area, it is a small and quaint section with shops, restaurants and cafés.

Included

  • 1 klst. sigling frá Reykjavík
  • Regnstakkar til láns
  • Notkun sjónauka
  • Frábær og persónuleg leiðsögn
  • Myndir teknar af áhafnarmeðlimum (ef einhverjar)

Exclusions

  • Rúta til/frá hóteli
  • Veitingar

What to bring?

  • Þrífótur og aðrdráttarlinsa (ef verið er að ljósmynda)
  • Hlý föt og góðir skór

Please note

Klæddu þig vel, þar sem það er yfirleitt kaldara úti á sjó en í landi. Við mælum með hlýjum jakka, vettlingum og húfu. Ef það er ekki nóg geturðu fengið lánaðan regnstakk um borð þér að kostnaðarlausu!

Þar sem ánægja og öryggi farþega okkar og áhafnar er í hávegum höfð, er ferðin ávallt háð góðum veður- og sjóskilyrðum. Ferðinni gæti því verið aflýst með stuttum fyrirvara.

Við bjóðum einnig upp á ýmsar aðrar ferðir. Prófaðu hvalaskoðun + lundaskoðun eða hvalaskoðun á RIB-bát!

Book now