Takk fyrir að sýna því áhuga að vinna hjá Eldingu.
Við erum að leita að fólki í eftirfarandi störf (engin störf í boði eins og er), en veitið því athygli að við tökum aðeins við rafrænum umsóknum. Sótt er um starf með því að smella á starfsheiti hér fyrir neðan og fylla út viðeigandi umsókn.
Athugið að ferilskrá er einn mikilvægasti þátturinn þegar sótt er um starf en til að auka líkur á að umsóknin standist samanburði við aðrar umsóknir og skili sér í leitarmöguleikum í umsóknarkerfinu biðjum við um að reitir séu ítarlega og vel útfylltir.
Þegar umsóknin hefur verið send áfram til okkar fær umsækjandi tilkynningu í tölvupósti um að umsókn hafi borist. Allar umsóknir eru tímabundið geymdar á skrá hjá mannauðsstjórn og farið er með þær sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast hafið samband við mannauðsstjórn Eldingar í tölvupósti (jobs@elding.is) ef þið hafið einhverjar spurningar.




