Staðsett í Reykjavík & Akureyri!
Eftirfarandi upplýsingar eiga við staðsetningu okkar í Reykjavík. Ýtið hér til þess að sjá hvar við erum staðsett á Akureyri.
Í hjarta gömlu hafnarinnar í Reykjavík finnur þú miðasölu okkar og báta. Þessi hluti borgarinnar hefur sprottið upp á undanförnum árum og er orðinn einn líflegasti hluti Reykjavíkur með fjöldan allan af búðum, veitingastöðum og afþreyingu á sjó.
Bátarnir okkar eru staðsettir örfáum skrefum neðar á höfninni og þar finnur þú einnig Hvalasetrið, sem er einskonar fljótandi safn! Þar er einnig að finna kósý kaffiteríu og minjagripaverslun. Vinsamlegast komdu við í miðasölu okkar og tékkaðu þig inn áður en þú ferð um borð.
Heimilisfang: Ægisgarður 5, 101 Reykjavík, Iceland
GPS Staðsetning: 64°09'06.9"N 21°56'34.0"W
Leiðbeiningar:
Miðasala okkar er í um 500 metra fjarlægð frá Ingólfstorgi og um 900 metra fjalægð frá Hörpu. Við bjóðum upp á rútuferðir til og frá hótelum og rútustoppistöðvum innan Reykjavíkursvæðisins gegn vægu gjaldi (2.200 kr.- fyrir fullorðna og 1.100 kr.- fyrir börn).
Strætó stoppar 200 metrum frá höfninni og er það leið nr. 14 sem þangað keyrir. Lækjartorg er svo í um 600 metra göngufjarlægð, en þar stoppa helstu leiðir innan Reykjavíkur.
Ef þú kemur keyrandi, þá mælum við með að leggja á Miðbakka eða á bílastæðinu fyrir aftan Sjóminjasafnið á Grandagarði. Athugið að bílastæðin gætu verið á merktum svæðum sem þarf að greiða fyrir.
(Lestu meira um mismunandi gjöld bílastæðasjóðs hér: http://www.bilastaedasjodur.is/gjaldskylda/gjaldsvaedin)
|
Svæði 1 |
Svæði 2 |
Svæði 3 |
Svæði 4 |
|
Verð: |
Verð: |
Verð: |
Verð: |
|
Tímar: |
Tímar: |
Tímar: |
Tímar: |
Endilega heyrðu í okkur í síma 519 5000 ef þú þarft frekari upplýsingar um staðsetningu okkar.




