researchers looking at photo of a whale and comparing it with in folder

Við tökum þátt í rannsóknum á sjávarspendýrum og bjóðum sjávarlíffræðingum og vísindamönnum velkomin um borð. Við notum aðallega ljósmyndir til að auðkenna hvali með því að bera saman ugga, ör og/eða sporð dýranna til þess að þekkja einstaklinga í sundur, sjá hvert þeir ferðast, athuga hvaða aðra einstaklinga dýrin eru líkleg til að umkringjast, kanna hvort þau heimsækja sömu svæðin aftur og meta aldur og fjölda dýra í stofni. Ein mynd getur þannig gefið fjöldan allan af upplýsingum.

 

Elding er fjölskyldufyrirtæki sem kviknaði út frá persónulegum áhuga á náttúru, dýralífi, bátum og fólki. Hvalaskoðun er fullkomin leið til að tengja þessa þætti saman og á sama tíma gefum heimamönnum og ferðafólki tækifæri til að upplifa og líta sjávarspendýr Íslands augum í þeirra náttúrulega umhverfi. Við erum brautryðjendur á okkar sviði og stolt af því að vera fyrsta fyrirtækið til þess að bjóða upp á hvalaskoðun út frá Reykjavík.

Hvalaskoðun við strendur Íslands hefur orðið sífellt vinsælli frá árinu 1990 og er í dag ein vinsælasta afþreyingin innan ferðaþjónustunnar. Með aukinni bátaumferð aukast einnig áhyggjur af neikvæðum áhrifum umferðarinnar á dýralífið, bæði hér á Íslandi en einnig á öðrum hvalaskoðunarsvæðum í heiminum.