ambassador boat

Ambassador hefur verið nefndur einn af bestu hvalaskoðunarbátum á Íslandi, vegna sex mismunandi útsýnispalla sem hann býr yfir. Báturinn var upprunalega byggður árið 1971 í Hamborg í Þýskalandi sem lögrelgubátur. Árið 1998 var hann aðlagaður svo hann henti betur til skemmtisiglinga og var síðar seldur til Svíþjóðar. Árið 2012 var hann keyptur til Íslands og endurbyggður til að hann hentaði betur sem hvalaskoðunarbátur.

Við erum við alls kyns tegundir af bátum staðsettum í Reykjavík og á Akureyri. Hafsúlan, Elding og Eldey eru þeir bátar sem við notum mest í hvalaskoðun og norðurljósaferðum.

Elding er ferðaþjónustufyrirtæki á sviði sjóafþreyingar og hefur verið leiðandi í umhverfis og sjálfbærnismálum í ferðaþjónustu í áraraðir. Við notum þjú mismunandi vottunarkerfi sem öll bjóða upp á frábær tól og tæki sem hjálpar okkur að ná markmiðum í umhverfismálum.

Um 70% af útblæstri CO2 frá Íslandi kemur frá framræstu votlendi og eingöngu 15% af öllu framræstu votlendi á landinu er í noktun. Með því að endurheimta votlendi er CO2 bundið á áhrifaríkan hátt ásamt því að endurheimta lífríki á staðnum. Elding er stoltur stofnmeðlimur votlendissjóðsins. Með því að taka þátt í verkefninu vonumst við til að kolefnisjafna rekstur okkar.

Ábyrg ferðaþjónusta felur í sér að við setjum okkur markmið í fjórum meginþáttum, en þeir eru:

Ganga vel um og virða náttúruna

- Við flokkum allan úrgang sem kemur frá bátum okkar og skrifstofum
- Vistvæn innkaup
- Elding er meðlimur í Vakanum ásamt því að vera vottað fyrirtæki af Bláfánanum og Earth Check
- Við setjum okkur markmið um

Elding er ferðaþjónustufyrirtæki á sviði sjóafþreyingar og hefur verið leiðandi í umhverfis og sjálfbærnismálum í ferðaþjónustu í áraraðir. Við notum þjú mismunandi vottunarkerfi sem öll bjóða upp á frábær tól og tæki sem hjálpar okkur að ná markmiðum í umhverfismálum.

Við eigum fjölbreytt úrval báta sem eru notaðir í hinar ýmsu ferðir. Einnig erum með einstakt hvalasetur sem er einskonar samkomustaður fyrir farþega okkar, en þar er einnig að finna lítið náttúrulífssafn, kaffiteríu og minjagripaverslun.

 

Takk fyrir að sýna því áhuga að vinna hjá Eldingu.

Við erum að leita að fólki í eftirfarandi störf (engin störf í boði eins og er), en veitið því athygli að við tökum aðeins við rafrænum umsóknum. Sótt er um starf með því að smella á starfsheiti hér fyrir neðan og fylla út viðeigandi umsókn.

Til þess að nýta náttúruauðlindirnar sem hvalirnir eru og ferðirnar okkar eru byggðar á, þurfum við að virða náttúruna og gefa eins mikið til baka og við mögulega getum. Eldingarteymið leitast því við að viðhalda nauðsynlegu vistfræðilegu jafnvægi og hjálpa til við að vernda náttúruna og líffræðilega fjölbreytni.